a.rawlings er listrænn stjórnandi Alþjóðlegrar ljóðahátíðar. Fyrsta bók hennar, Wide slumber for lepidopterists (Coach House Books, 2006) hlaut alþjóðlegt lof og Canadian Alcuin verðlaunin fyrir bókahönnun. angela kom fram á ljóðahátíð Nýhil árin 2007, 2009 og 2010. Hún fékk hinn virta Chalmers Arts styrk, sem hún notaði til að skrifa hér á Íslandi og til að halda ritlistarnámskeið fyrir Nýhil árin 2009 og 2010. Nýtilkomnir búferlaflutningar hennar til Íslands, reynsla hennar og áratugalöng vinna við skipulagningu bókmenntahátíða og útgáfu í Kanada gera hana að ánægjulegum liðsauka fyrir Reykjavík.
Ásgeir H. Ingólfsson er blaðamaður, bókmenntafræðingur og bóksali. Hann hefur starfað sem blaðamaður og gagnrýnandi hjá Morgunblaðinu, Smugunni, Kistunni og Landi og sonum, vefriti kvikmyndagerðarmanna. Fyrir Nýhil hefur hann gefið út ljóðbókina Grimm ævintýri og ritstýrt fræðiriti Bjarka Valtýssonar, Íslensk menningarpólitík.
Kristín Eiríksdóttir er virtur rithöfundur og myndlistarmaður. Hún hefur gefið út fjórar bækur (þrjár ljóðabækur og eitt smásagnasafn). Hún hefur einnig birt ljóð í íslenskum og erlendum bókmenntatímaritum. Nýhil gaf út fyrstu ljóðabók hennar og hefur hún verið náin samverkakona félagsins frá upphafi þess.
Marta Guðrún Jóhannesdóttir er með háskólagráðu í bókmenntum og finnsku. Hún nemur nú íslenskar bókmenntir við Háskóla Íslands og kennir íslensku. Marta Guðrún hefur unnið við dagskrárgerð á RÚV og var annar umsjónarmaður bókmenntaþáttarins Seiðs og hélogs árin 2007-2010. Frá árinu 2011 hefur hún komið að bókmenntaþættinum Skorningar.
Þór Steinarsson er með B.A. í bókmenntafræði og leggur stund á framhaldsnám í Opinberri stjórnsýslu í Háskóla Íslands.
/
a.rawlings, 2011 festival artistic director. a.rawlings is a poet, arts educator, and interdisciplinary artist. Her first book, Wide slumber for lepidopterists (Coach House Books, 2006) received international praise and an Alcuin Award for book design. In 2009 and 2010, she received a Chalmers Arts Fellowship, which afforded her time to create in Belgium, Canada, and Iceland. angela’s current projects include Environment Canada (book in progress), Rule of Three (Tarot cards in progress), Órói (in collaboration with Maja Jantar), drift (in collaboration with Julie Lassonde and Nilan Perera), Ljoðapoems (book in progress), and Völva.
Ásgeir Ingólfsson, board member. Ásgeir has a degree in literature and has worked as a journalist and critic. He is the author of one book. Ásgeir is a new board member.
Kristín Eiríksdóttir, board member. Kristín is a renowned author and visual artist. She has published three books (two poetry and one short fiction), the most recent of which is Doris Deyr. She has also published poems in Icelandic and foreign literary magazines.
Marta Guðrún Jóhannesdóttir, board member. Marta has a degree in Literature and Finnish Language. She is currently studying Icelandic Literature at the University of Iceland and teaching Icelandic. Marta Guðrún was a program director at RÚV where she co-hosted the literature program Seiður og Hélog from 2007-2010. From 2011 she has also worked on the radio program Skorningar.
Þór Steinarsson, board chairperson. Þór has a BA in Comparative Literature and was the manager of Nýhil from 2005 to 2006.